Nikulásarmótið í knattspyrnu er komið með nýja heimasíðu:
www.nikulasarmot.is
---
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Leikjaniðurröðun
Föstudag .
Laugardagur
Sunnudagur
Fimmtudagurinn. 16.júlí 2009
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Þá er öðrum degi Nikulásarmótsins lokið, og ekki annað hægt að segja
nema að keppnisandinn hafi skinið úr andlitum barnanna, ásamt
sólinni sem við fengum að njóta í allan dag.
Á morgun tekur við úrslitakeppnin ásamt því að riðlar klárast.
Hægt er að nálgast úrslitin frá fyrstum tveimur
dögunum HÉR
Hér er hægt að nálgast leikjaplanið fyrir Sunnudaginn
HÉR
Fimmtudagurinn. 16.júlí 2009
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Nú er leikjaniðurröðunin klár fyrir alla
helgina, og hægt er að nálgast hana hér að ofan. Allt er klárt til
þess að mótið geti hafist og virðist veðrið ætla að leika við okkur.
Með fótbolta kveðju Mótsnefnd
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------Fimmtudagurinn. 16.júlí 2009
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------Búið
er að raða félögum niður á tjaldsvæði

Einherji Vopnafirði= Aðaltjaldstæði
Dalvík = Íþróttahús norður
KS = Á móti gagnfræðaskólanum
KA = Hóteltúnið
Tindastóll. = Hóteltúnið
Höttur = Leikskólatúnið
Fjarðabyggð Hóteltúnið
Mývetningur. = Aðaltún, Íþróttahús norðanmegin
Samherjar = Hóteltún
Skallagr. = Leikskólatún
Þór = Bókasafn norður
Víkingur = Bókasafn norður
Leiknir R = Aðaltún, Íþróttahús
ÍA = Bókasafn suður
Breiðablik. = Neðan við íþróttahús
Fylkir = Á móti gagnfræðaskólanum
Neisti Djúpavogi. = Leikskólatún
Ef einhverjar upplýsingar vantar varðandi gistingu vinsamlegst
hafið samband við
Ingimar í síma 895-2427 /Óskar 866651
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------Fimmtudagurinn. 16.júlí 2009
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Búið er að raða félögum niður í gistingu
Barnaskóli: Leiknir,
ÍA, Víkingur, Þór(neðri hæð og salur).
Gagnfræðaskólinn: KA
Leikskólinn: Höttur
Listhús: Samherjar
Hús eldri borgara: Fjarðabyggð
Sandhóll: Mývetningur.
Skíðaskáli: Dalvík.
Félagsmiðstöð: Fylkir
Bylgjubyggð 55: KS.
Bylgjubyggð 63: Breiðablik.
Ólafsvegur 28: Skallagrímur
Ólafsvegur 28: Neisti
Ólafsvegur 30: Tindastóll.
Kirkjuvegur: Einherji.
Ef einhverjar upplýsingar vantar varðandi gistingu vinsamlegst
hafið samband við
Ingimar í síma 895-2427 /Óskar 866651
___________________________________________________________________________________________
Fimmtudagurinn. 16.júlí 2009
Þá er Leikjaniðurröðunin komin fyrir föstudaginn, hægt er að
nálgast hana með því að smella HÉR
Einnig er komin leikjaniðurröðunin fyrir laugardaginn hjá
5.flokki, 6.A og 6.B, leikjaplanið hjá 6.C og 7.flokki koma
hér inn um leið og það er klárt.
Leikjaniðurröðun fyrir Laugardag er
HÉR
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Veðurspáin virðist vera að snúast okkur í hag um helgina hér
er hægt að sjá spánna frá Norskri
veðursíðu(www.yr.no)Fimmtudagurinn. 16.júlí 2009
Föstudagur
Sunnudagur
|
kl 0 |
|
0 mm |
9° |
1 m/s |
|
kl 6 |
|
0 mm |
9° |
3 m/s |
|
kl 12 |
|
0 mm |
12° |
4 m/s |
|
kl 18 |
|
0 mm |
13° |
3 m/s |
|
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Þá er Leikjaniðurröðunin komin fyrir föstudaginn, hægt er að
nálgast hana Með því að smella HÉR
Einnig er komin leikjaniðurröðunin fyrir laugardaginn hjá
5.flokki, 6.A og 6.B, leikjaplanið hjá 6.C og 7.flokki koma
hér inn um leið og það er klárt.
Leikjaniðurröðun fyrir Laugardag er
HÉR
Miðvikudagurinn. 14.júlí 2009
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Jæja, þá styttist í Nikulásarmótið og undirbúningur gengur
mjög vel. Fyrstu gestir mótsins eru þegar komnir í
bæjinn. Leikjaniðurröðunin verðu komin
hérna inn á síðuna í fyrramálið.
Upplýsingar um gististaði félaga verða birtar hérna á
síðunni í kvöld.
Við viljum
koma því líka á framfæri til félaga að ef um
einhversskonar fæðuofnæmi er að ræða hjá keppendum, þá
vinsamlegast sendið okkur upplýsingar á
leiftur@simnet.is
svo hægt sé að gera ráðstafanir. Merkt hafa verið tjaldstæði
fyrir öll félög.
Hlökkum mikið til þess að sjá ykkur öll!!!
Föstudagurinn 10.júlí 2009
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Í gær skrifuðu Leiftur vegna
Nikulásarmóts og VÍS undir samning
þess efnis að VÍS muni vera aðalstyrktaraði Nikulásarmótsins
2009. Mótið er nú haldið í 19. sinn en talið er að um það
bil 800 ungmenni muni taka þátt í mótinu að þessu sinni. Á
mótinu er spilað í 7., 6., og 5. flokki karla og kvenna.
Nikulásarmót VÍS 2009 fer fram dagana 17-19. júlí og er hægt
að skoða allar upplýsingar um mótið á vefsíðu mótsins,
www.nikulas.is.
Leiftur starfrækir metnaðarfullt og faglegt íþróttastarf með
heilbrigði og vellíðan að leiðarljósi og er VÍS stoltur
samstarfsaðili í þessu starfi.
Föstudagurinn 10.júlí 2009
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------Sælir
væntanlegir Nikulásarmótsgestir.
Nokkur atriði.
Nú fer að
styttast í mótið og hér eru nokkur atriði sem við viljum koma á
framfæri.
1.)
Við viljum koma því á framfari til félaga að ef um einhversskonar
fæðuofnæmi er að ræða hjá keppendum, þá vinsamlegast sendið okkur
upplýsingar á
leiftur@simnet.is
svo hægt sé að gera ráðstafanir.
2.)
Ef félög óska eftir því að láta taka frá tjaldstæði fyrir sig þá
þurfum við að fá að vita af því fyrir þriðjudaginn 13. júlí.
3.)
Viljum biðja félög um að taka með sér sína félagsfána til þess að
hafa á mótssetninguJ
4.)
Núna er undirbúningur mótsins í fullum
gangi og verið er að leggja lokahönd á dagskrá mótsins. Verið dugleg
að fylgjast með hér á síðunni. Búið er að uppfæra
flest á síðunni og biðjum við ykkur um að fylgjast vel með!
Með bestu kveðju frá mótsnefnd og hlökkum til þess að sjá ykkur
öll.
___________________________________________________________________________________________
Miðvikudagurinn 24. júní 2009-
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Svaka stuð og stemming verður á Nikulásarmótinu. Þar munu
þeir Sveppi og Villi (naglbítur) halda uppi fjörinu fyrir
gesti og gangandi. Karamelluflugið verður á sínum stað og á
vallarsvæðinu verður staðsettur pönnuboltinn vinsæli. Þannig
að nóg verður um að vera. :-)


þriðjudagurinn 9. júní 2009-
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Undirbúningur vegna Nikulásarmóts gengur mjög vel.
Undanfarin ár hafa færri komist að en vildu og eru því
félög beðin um að ganga frá skráningu sinna liða sem allra
fyrst. Allar nánari upplýsingar sem varða mótið verða birtar
hér á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.
Almennar upplýsingar:
Þátttökugjald er 7.500 krónur fyrir
keppendur, frítt er fyrir einn þjálfara/ liðstjóra
með hverju liði. Staðfestingargjald pr. lið er 5.500
krónur og ber að greiða það í síðasta lagi 15.júní. 2009.
Þetta staðfestingargjald er óendurkræft, og
dregst ekki frá þátttökugjaldi.
Innifalið í verði:
gisting, allar máltíðir og öll afþreying á vegum mótsins.
Staðfestingargjald 5.500 kr. per lið skal leggja inn á
reikning
1127-15-200350
kt. 420269-7659 og
sendið kvittun á netfangið
leiftur@simnet.is því til
staðfestingar.
Nánari upplýsingar fást hjá: Helgu í síma
4662626 / 8986426,
eða Gerði í síma 4662311 / 8644887
netfang;
leiftur@simnet.is
|
Miðvikudagur 15.apríl 2009-- |
Að gefnu tilefni viljum við koma því á framfæri að mótið í
sumar er helgina 17.-19. júlí. (ekki 10.-12.
júlí eins og fram hefu komið einhversstaðar)
Einhverjar gamlar upplýsingar náðu að lauma sér hér inn, nú
er búið að lagfæra það.
Hægt er að sjá drög að dagskrá
hér
|
|
Þriðjudagur 7.apríl 2009-- |
Nú er vinna í fullum gangi við Nikulásarmótið. Hægt er að
hafa samband á netfangið
gerdurgulli@simnet.is
eða leiftur@simnet.is
til að fá upplýsingar um mótið.
Þau lið sem hafa skráð sig geta lagt staðfestingargjaldið
(5.500 fyrir hvert lið) inn á eftirfarandi reikning:
1127-15-200350, kt. 420269-7659
|
|
Þriðjdagur 27.01.09 |
|
Kominn er inn áætluð dagskrá fyrir
mótið
2009 |
|
Mánudagurinn 14.júlí 2008-- |
|
Hér má sjá úrslit
nikulásarmótsins 2008. |
|
Mánudagurinn 14.júlí 2008-- |
|
Við í stjórn Nikulásarmótsins 2008 viljum
þakka öllum kærlega fyrir þátttökuna og komuna.
Jafnframt viljum við þakka öllum þeim sem komu að skipulagi
og framkvæmd nikulásarmótsins kærlega fyrir hjálpina.
Vonandi sjáumst við öll hress og kát að ári.
|
|
Sunnudagurinn 13.júlí 2008-- |
|
Þá er 18. Nikulásarmótinu lokið, og eins og
áður hefur komið fram var þetta mót það stærsta í sögu
Nikulásarmótsins.
Úrslit mótsins mun koma hér inná vefinn fljótlega og minnum
við fólk á að það er hægt að skoða myndir á myndasíðu
Nikulásarmótsins en það var Guðný Ágústsdóttir sem tók þær
myndir.
Hægt er að skoða þær með því að ýta
HÉR, Og einnig er hægt
að skoða myndir á vef
Pedromynda sem voru hér alla helgina að taka myndir, þar
er einnig hægt að kaupa myndir!
 |
|
|
|
Föstudagurinn 11.júlí 2008-- |
LEIKJAPLAN FYRIR LAUGARDAGINN KLÁRT.
Má finna það hér:
Góða helgi :)
|
|
Fimmtudagurinn 10.júlí 2008-- |
Nú eru einungis einn dagur í mót og fólk farið að streyma í
fjörðinn.
Skráð eru 84 lið frá 20 félögum og er þetta metaðsókn á hið
árlega Nikulásarmót.
Þess skal geta að færri komust að en vildu.
Leikjarröðun er í fullri vinnslu og verður hún birt hér á
síðunni eins fljótt og unnt er.
|
|
Fimmtudagurinn 10.júlí 2008-- |
Tröllakot
Glæsileg gistiaðstaða í boði á besta stað í firðinum okkar
fagra.
Upplýsingar er hægt að fá á heimsíðu Tröllakots.
www.trollakot.is
|
|
Fimmtudagurinn 10.júlí 2008-- |
Jæja..þá er gistingin komin á hreint.
GAGNFRÆÐISKÓLINN:
Afturelding
Leiknir
Grindavík
ÍA
Neisti
BARNASKÓLI:
Þór
Höttur
Skallagrímur
Völsungur
ÍÞRÓTTASALUR:
Fylkir
SKÍÐASKÁLI:
Dalvík
HÚS ELDRIBORGARA:
KA
FÉLAGSMIÐSTÖÐ - EFRI HÆÐ TJARNARBORGAR:
Samherji
SANDHÓLL:
Einherji
SAFNAÐARHEIMILI:
Fjarðabyggð
EINBÝLISHÚS - BALDUR
Tindastóll
EINBÝLISHÚS - BJÖRN VALUR
KS
EINBÝLISHÚS - JÓNÍNA
Mývetningur
|
|
Fimmtudagurinn 10.júlí 2008-- |
Jæja Nikulásargestir...fengum veðurspá frá
Einari Sveinbjörnssyni sem hljóðar svo:
Fimmtudagur 10. júlí:
NA gola og lágskýjað eða þoka. Úrkomulaust. Hiti
+9°C
Föstudagur 11. júlí:
Lágskýjað framan af degi, en NV andvari og birtir mikið upp
þegar líður á daginn. Þó stutt í þokuna úti fyrir.
Hiti +11°C
Laugardagur 12. júlí:
Suðvestan eða sunnan andvari og léttir mikið til.
Kannski þó skýjað af háskýjum en úrkomulaust.
Hiti +15°C. Mögulega hafgola um og eftir miðjan daginn
og þá eðlilega svalara.
Sunnudagur 13. júlí:
Ákveðin S-átt, 5-7 m/s og rigning um tíma um leið og skil
fara yfir um morguninn, en annars þurrt, skýjað með köflum
og hiti um 14°C.
Við
fáum þó nýjustu spá á morgun sem við munum skella hér inn á
síðuna.
Sjáumst í
firðinum fagra.
|
|
Þriðjudagurinn 8.júlí 2008-- |
Við höfum fengið fyrirspurnir um það hvort
hundahald sé leyfilegt á tjaldsvæðum og íþróttasvæðum.
Hundahald er stranglega bannað á
íþróttasvæðinu og við mælumst til þess að fólk sé ekki með
hunda á tjaldsvæðum vegna þess að áætlað er að um 400 tjald-
og fellihýsi verði á svæðinu og því mikil þrengsli.
|
|
Þriðjudagurinn 8.júlí 2008-- |
Nú styttist óðum í Nikulásarmótið þetta árið og hafa okkur
borist þær fregnir að fyrstu gestirnir séu væntanlegir á
morgun.
Vinna í kringum mótið er í fullum gangi og eru 20 félög
skráð sem er metþátttaka..hip hip húrraaa
Við viljum benda þeim félögum sem eftir eiga að greiða
staðfestingargjald að gera það strax og senda okkur síðan
tilkynningu á
leiftur@simnet.is
Hlökkum til að sjá alla um helgina,
Nikulásarnefnd
|
|
Þriðjudagurinn 8.júlí 2008-- |
Óskum eftir sjálfboðaliðum til starfa við hin
ýmsu störf á Nikulásarmótinu.
Öll boð vel þegin!
Sendið e-mail á
leiftur@simnet.is eða
hringið í síma 466-2728
|
|
Föstudagurinn 4.júlí 2008-- |
Við viljum biðja þau félög sem enn eiga eftir að greiða
staðfestingargjaldið að gera það sem allra fyrst.
staðfestingargjald er kr. 5000 fyrir hvert lið.
Reikningsnúmerið: 1127-26-820
Kennitala: 6403004420
senda þarf kvittun á
leiftur@simnet.is
|
|
Föstudagurinn 4.júlí 2008 |
Nú er búið að setja inn ,,Dagskrá,, mótsins inn og hægt er
að nálgast hana hér að ofan undir ,,Dagskrá,,
eða með því að ýta HÉR

|
|
Föstudagurinn 4.júlí 2008- |
|
Nú er
búið að ganga frá því að Eyþór Ingi muni sjá um skemmtun á
laugardagskvöldinu kl:20:00, áætlað er að haldnir verði
útitónlekar sunnan við Tjarnarborg .
Eins og flestir muna vann hann í Bandinu hans Bubba.
Og eflaust á hann því marga aðdáendur sem koma á
Nikulásarmótið í sumar.
|
|
Miðvikudagurinn 2.júlí 2008-- |
Núna er undirbúningur mótsins í fullum gangi og verið er að
leggja lokahönd á dagskrá mótsins. Verið dugleg að fylgjast
með hér á síðunni. Búið er að uppfæra tenglana " skráð
félög" og "gagnlegar upplýsingar"
|
|
Miðvikudagurinn 2.júlí 2008-- |
Við viljum koma því á framfari til félaga að ef um
einhversskonar fæðuofnæmi er að ræða hjá keppendum, þá
vinsamlegast sendið okkur upplýsingar á
leiftur@simnet.is svo
hægt sé að gera ráðstafanir.
|
|
Föstudagurinn 27.júní 2008-- |
21 félag eru skráð á Nikulásarmótið 2008 um metskráningu er
að ræða.
Ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar endilega sendið okkur
þá póst á netfangið
leiftur@simnet.is
|
|
Þriðjudagurinn 3.júní 2008-- |
Skráningar í fullum gangi, 16 félög skráð!
Nú síðustu daga hafa mörg félög skráð sig á Nikulásarmót,
hægt er að skoða skráningu 2008 undir heitinu "Skráð félög
2008" hér að ofan. Þau félög sem vilja koma á Nikulásarmótið
en hafa ekki lokið skráningu er hvött til að gera það sem
fyrst.
Greiða þarf staðfestingargjald kr. 5000 fyrir hvert lið í
síðastalagi 15.Júní.
Reikningsnúmerið: 1127-26-820
Kennitala: 6403004420
Vinsamlegast sendið kvittun í tölvupósti á netfangið
leiftur@simnet.is þar
sem fram kemur: heiti félags og fjöldi flokka.
|
|
Þriðjudagurinn 6 Maí 2008-- |
Nú er skráningarformið komið og búið að uppfæra flestar
upplýsingar. (Sjá undir "skráning
2008" hér fyrir ofan)
Unnið er að dagskrá mótsins. Einnig munum við reyna að
uppfæra þau lið sem skrá sig jafn óðum og það gerist.
Ef að það vakna einhverjar spurningar þá er um að gera að
senda E-Mail á
leiftur@simnet.is eða
helgai2@simnet.is
|
|
Föstudagurinn 2. nóvember 2007-- |
það er
mjög ánægjulegt að segja frá því að nú þegar eru
farnar að berast skráningar á Nikulásarmótið 2008.
Þannig að það er um að gera að senda póst á
leiftur@simnet.is
ef einhverjar upplýsingar vantar um Nikulásarmótið 2008
Með Nikulásarmótskveðju.
|
|
Mánudagurinn 16 Júlí 2007--KNH |
Myndir frá mótinu eru komnar inn á netið og hægt er að sjá
þær með því að ýta á
mótsmerkið hér til hægri Það var Guðný Ágústsdóttir sem tók
þær en einnig er hægt að skoða/kaupa myndir á vef
Pedromynda |
|
Sunnudagurinn 15 Júlí 2007--KNH |
|
Úrslit
Nú eru öll úrslit kominn hér á vefinn og hægt er að nálgast
þau Hér
Þökkum kærlega fyrir frábært mót, Góða umgengni og háttvísi
Mótstjórn Nikulásarmótsins. |
|
Föstudagurinn 13 Júlí 2007 - GRG
|
|
Leikjaniðurröðunin!
Leikjaniðurröðunin er klár, hægt er að
skoða hana með því að smella
hér
Hér eru svo smá útskýringar á niðurröðun á 5. flokki:
5 flokki
er styrkleikjaraðað þar sem við erum búnir að skipta þeim í
3 riðla. Eftir laugardag skiptast svo liðin í A, B og C
fyrir sunnudag. Efsta lið í hverjum riðli mun fara beint í A
og besta lið í 2.sæti. Svo skiptist restin í 5 lið sem fara
í B og 5 lið í C fyrir sunnudag.
Það fara sem sagt 4 lið í A-riðil (3 efstu og það lið í 2.
sæti sem hafði besta "skorið")
5 lið fara í B-riðil og 5 lið í C-riðil
Einnig hafa
smávægilegar breytingar orðið á dagskrá, t.a.m. þá byrjar
mótið kl. 8:15 á sunnudeginum en ekki kl. 9 og byrjar þá
morgunmatur kl. 7 (en ekki 7:30) ... Dagskráin hefur sem
sagt verið uppfærð
|
|
Miðvikudagurinn.Júlí 2007 -- HI |
|
Undirbúningur!
Undirbúningur gengur vel og hlökkum við
mikið til þess að fá ykkur öll á Nikulásarmótið. Keppendur
verða um 700 talsins auk þess fylgir þessum flotta hóp
mikið af þjálfurum, farastjórum, foreldrum og systkinum
þannig að reikna má með því að fjörið verði á Nikulásarmóti
um helgina. |
|
Miðvikudagurinn.Júlí 2007 -- HI |
|
Tjaldsvæði!
Ef einhver félög eiga eftir að láta taka frá tjaldsvæði
fyrir sig, væri gott ef það yrði gert sem allra fyrst.
Tölvupóst með upplýsingum um nafn félags og fjölda þarf að
senda á nettfangið
leiftur@simnet.is eða
helgai2@simnet.is |
|
Miðvikudagurinn.Júlí 2007 -- HI |
|
Skrúðganga!
Við viljum biðja forsvarsmenn allra félaga sem eru að koma á
Nikulásarmótið að muna eftir því að taka með sér félagsfána
viðkomandi félags . |
|
Miðvikudagurinn.Júlí 2007 -- HI |
|
Pedromyndir!
Við viljum koma því á framfæri að Pedromyndir verða á
svæðinu alla helgina og mynda allt sem þar fer fram.
Myndasýning og sala fer síðan fram í Íþróttahúsinu á
sunndeginum. |
|
Mánudagur 9.Júlí 2007 -- IEH |
|
Mötuneyti!
Mikið af fyrirspurnum er búið berast til okkar undanfarið
varðandi mötuneytið. Nú loksins, loksins er það komið inná
netið og er hægt að sjá: Verð á Mat, Verð á matararmböndum
og ýmsar upplýsingar um matseðilinn!
MÖTUNEYTIÐ ER FYRIR ALLA KEPPENDUR,ÞJÁLFARA OG AÐRA
GESTI MÓTSINS
Einnig eru komnar Leikreglur mótsins og hægt er að nálgast
þær hér að ofan!!
Sjá mötuneyti |
|
Miðvikudagur 4.Júlí 2007 -- IEH/HI |
|
Dagskrá
Dagskrá og Upplýsingar hafa verið uppfærð og má sjá bæði hér
fyrir ofan undir heitinu "Dagskrá" og "Gagnlegar
Upplýsingar"
|
|
Föstudagur 8. júní 2007 - -
GRG |
|
Staðfestingargjöld
Staðfestingargjöldin þurfa að greiðast
fyrir 15. júní nk.
Leggist inn á reikning 1127-26-820 kt. 640300-4420
Greiðslukvittun sendist svo á leiftur@simnet.is
Búið er að ganga frá því að karamelluflug verður eftir
útitónleikana hjá Ínu (ef veður leyfir)
|
|
Miðvikudagur 4. júní 2007 - -
GRG |
|
Ína (Idol) og Hljómsveit á Nikulásarmóti
Nú er búið að ganga
frá því að Ína Idol og hljómsveit munu sjá um skemmtun á
laugardagskvöldinu (kvöldvakan), áætlað er að þau spili úti
ef veður leyfir.
Eins og flestir muna
lenti Ína í öðru sæti í Idol stjörnuleitinni í fyrra og á
hún eflaust marga aðdáendur sem koma á Nikulásarmótið í
sumar.

|
|
Miðvikudagur 4. júní 2007 - -
GRG |
|
KA að bætast í
hópinn
KA er búið að bætast
í hópinn með skráðum félögum og þau því orðin 17 talsins
|
|
Miðvikudagur 9. maí 2007 - -
GRG |
|
4 félög að bætast við
Nú eru 4 félög búin
að bætast í hópinn og því félögin
orðin 16 talsins sem taka þátt
|
|
Mánudagur 7. maí 2007 - -
GRG |
|
Rétt skal vera rétt
Í gær sögðum við frá
því að 12 lið höfðu skráð sig, við erum að sjálfsögðu
að tala um 12 félög, það eru mörg lið frá hverju
félagi og því miklu fleiri lið.
|
|
Sunnudagur 6. maí 2007 - -
GRG |
|
12 lið búin að skrá sig
Í dag, 6. maí hafa
12 lið skráð sig á Nikulásarmót 2007 því fer hver að
verða síðastur að skrá sig áður en öll pláss klárast.
|
|
Þriðjudagur 1. maí 2007 - -
GRG |
|
Skráningar að hrannast inn
Nú þegar hefur
fjöldi liða skráð sig, þið getið séð það með því að smella á
skráningu hér fyrir ofan
|
|
Mánudagur 26. mars 2007 - -
GRG |
|
Saga Nikulásar
Ægir Ólafsson
formaður Nikulásar hefur verið að því undanfarna daga að
skrá niður sögu félagins.
Nú er fyrsti kaflinn kominn og er hægt að lesa hann
hér
|
|
Þriðjudagur 19. mars 2007 - -
GRG |
|
Sparisjóður Ólafsfjarðar styður
Nikulásarmótið
Sparisjóður
Ólafsfjarðar hefur frá upphafi stutt vel við Nikulásarmótið
og nú hefur Sparisjóðurinn ákveðið í samvinnu við Nikulás að
færa öllum keppendum á Nikulásarmótinu 2007 fótbolta að
gjöf, boltarnir verða merktir Sparisjóðnum og
Nikulásarmótinu. Þetta er frábært framtak sem við erum mjög
þakklátir fyrir sagði formaður Nikulásar.
|
|
Þriðjudagur 13. mars 2007 - -
GRG |
|
Dagskráin komin inn
Nú er dagskráin komin inn hjá
okkur.
Skráningar eru í fullum gangi og eru þónokkur ný lið sem
aldrei hafa tekið þátt hjá okkur að skrá sig.
Hvetjum ykkur til að vera tímalega í skráningu því við getum
ekki tekið endalaust á móti liðum!
|
|
Mánudagur 29. janúar 2007 - -
GRG |
|
Skráningarformið komið í gagnið
Nú er skráningarformið orðið klárt og búið að uppfæra
flestar upplýsingar. (Sjá undir "skráning"
hér fyrir ofan)
Dagskráin ætti að koma inn á næstu dögum. Einnig munum við
reyna að uppfæra þau lið sem skrá sig jafn óðum og það
gerist.
|
|
Miðvikudagur 20. desember 2006 - -
GRG |
|
Gleðileg jól
Nikulás óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Þökkum öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að gera
Nikulásarmót eins glæsilegt og það í raun var,
styrktaraðilar, keppendur og aðrir velunnarar, kærar þakkir
og megi
gæfan ríkja með ykkur á nýju ári.
|
|
Miðvikudagur 20. desember 2006 - -
GRG |
|
Dagsetning klár á Nikulásarmóti 2007
Nikulásarmótið verður haldið helgina 13.-15. júlí.
|
|
Miðvikudagur 6. september 2006 - -
GRG |
|
Undirbúningur a fullu fyrir næsta ár!
Nú er undirbúningur fyrir næsta ár komin af stað, á næstu
dögum verður ljóst hvaða dagsetning verður á mótinu á næsta
ári, stefnt er að sömu helgi og í ár (miðjan Júlí) en það á
eftir að fá það staðfest!
|
|
Sunnudagur 16. júlí 2006 - -
GRG |
|
Fullt af myndum!
Hérna er hægt að skoða myndir sem Magnús Sveinsson tók
Einnig mynnum við á
www.123.is/nikki þar eru nokkur hundruð myndir
Svo erum við búin að bæta við
safnið okkar
|
|
Sunnudagur 16. júlí 2006 - -
GRG |
|
Úrslit Nikulásarmóts 2006
Nú eru úrslit nikulásarmóts 2006 klár, smelltu
hér til að skoða þau! (ATH. það er hægt að skoða alla
flokka með því að skipta um síðu neðst í skjalinu)
Við viljum hér með þakka öllum þeim sem komu að
Nikulásarmóti 2006 á einn eða annan hátt, hvort sem það var
með þátttöku eða aðstoð við mótið! KÆRAR ÞAKKIR fyrir
okkur!!!
|
|
Laugardagur 15. júlí 2006 - -
GRG |
|
Úrslit dagsins
Nú eru úrslit dagsins klár, smelltu
hér til að skoða þau! (ATH. það er hægt að skoða alla
flokka með því að skipta um síðu neðst í skjalinu)
|
|
Laugardagur 15. júlí 2006 - -
GRG |
|
Mótið fer vel af stað!
Mótið hófst formlega í morgun með skrúðgöngu frá
Tjarnarborg!
Við fréttum af því að síðan
Lífið á sigló væri búið að setja inn
myndir af mótinu!, ef þið eruð með síður og hafið sett
inn myndir af mótinu, endilega látið okkur við svo við getum
sett slóðina þangað hérna inn! (senda póst á
gisli@olf.is)
|
|
Föstudagur 14. júlí 2006 - -
GRG |
|
Myndir
Við fórum og tókum nokkrar
myndir af svæðinu í dag þegar fólkið var að koma sér
fyrir, það er mikill fjöldi kominn í bæinn og gaman að sjá
hvað bærinn iðar af mannlífi!
Einnig er búið að setja upp aðra myndasíðu vegna
Nikulásarmóts, slóðin er
www.123.is/nikki (þar eru komnar inn 50 myndir frá því í
dag)
|
|
Föstudagur 14. júlí 2006 - -
GRG |
|
leikjaskráin klár
Nú er leikjaskráin klár og er hægt að skoða hana
hér, einnig verður hægt að fá ljósritað eintak á
keppnissvæðinu (eða í vallarhúsinu)!
|
|
Föstudagur 14. júlí 2006 - -
JVB |
|
Frábært veður í Ólafsfirði
Í Ólafsfirði er frábært veður, sól og 18 stiga hiti og fólk
byrjað að týnast í bæinn og að myndast góð stemning og gott
útlit fyrir Nikulásarmótið.
|
|
Fimmtudagur 13. júlí 2006 - -
JVB |
|
Leikjaskráin klár á morgun
Leikjaskráin verður tilbúinn og komin hérna á síðuna á
morgun og héðan í frá getum við ekki leyft neinar breytingar
á skráningunni svo að við getum farið að ljúka þessu af og
koma þessu frá okkur.
|
|
Fimmtudagur 13. júlí 2006 - -
GRG |
|
Breyting!
Við sögðum frá því hér í morgun að Hopp og skopp yrðu með
leiktæki á staðnum, það hefur sem sagt breyst og verða þeir
ekki með leiktæki á staðnum þessa helgi!
|
|
Miðvikudagur 12. júlí 2006 - -
JVB |
|
Keppnisgjöld
Þjálfarar, fararstjórar eða aðrir forráðamenn sem sjá um að
greiða gjöldin fyrir sín félög eru hvattir til þess að gera
það strax við komu og fá þá afhend armbönd og gjafir til
keppenda.
Á föstudagskvöld verður opið á skrifstofu í vallarhúsinu frá
kl 20:00 - 22:00 og á laugardag frá kl: 08:00
|
|
Miðvikudagur 12. júlí 2006 - -
JVB |
|
Dagskráin 2006
Dagskráin fyrir Nikulásarmótið 2006 er komin inn
|
|
Miðvikudagur 12. júlí 2006
JVB |
|
Tjaldsvæði
Við viljum benda fólki á að geyma bíla EKKI á
tjaldsvæðinu, hægt að keyra inn á svæðið en vinsamlegast
geymið bílana ekki þar!
Tjaldsvæði verða að öllum líkindum þétt setin og verður
erfitt að koma öllum fyrir ef fólk er með bílana sína á
tjaldsvæðinu!
Einnig viljum við benda fólki á að það verður að öllum
líkindum ekki hægt að komast í rafmagn, þar sem það verður
tjaldað um allan bæ og tjaldsvæðið ekki gert fyrir svo
mikinn fjölda!
|
|
Miðvikudagur 12. júlí 2006
JVB |
|
Gott veður á Nikulásarmóti
Samkvæmt spá
veðurstofunnar um helgina þá er útlit fyrir hlýtt og
þurrt veður á Nikulásarmótinu á meðan þeir spá rigningu
fyrir sunnan þannig að það er um að gera að skella sér
í útilegu norður í Ólafsfjörð á Nikulásarmót í góða veðrið
|
|
Þriðjudagur 11. júlí 2006
GRG |
|
Snorri Snorrason Idolstjarna skemmtir á kvöldvökunni!

Á kvöldvökunni á laugardagskvöldinu mun Idolstjarnan Snorri
Snorrason ásamt Gunnari Þór Jónssyni skemmta krökkunum...
Var þetta staðfest nú seinnipartinn í
dag og hlökkum við til að fá Snorra til okkar!
|
|
Þriðjudagur 11. júlí 2006
GRG |
|
Matarmiðar
Eins og
venjulega fá allir keppendur á mótinu armbönd sem gildir í
mötuneytið og sund, samskonar armbönd fá þjálfara (einn með
hverju liði)
Þá geta aðrir
gestir á mótinu keypt sér armbönd sem gilda í mötuneytið.
Athugið að þau armbönd (eru í öðrum lit) og gilda ekki í
sundlaugina.
Nauðsynlegt er að hafa armbandið á hendinni þegar þau eru
sýnd við innganginn!
Einnig verður
að sjálfsögðu hægt að kaupa stakar máltíðir á staðnum, sjá
nánar hér
|
|
Þriðjudagur 11. júlí 2006
GRG |
|
Gisting keppenda
gistingin hjá
keppendum er orðin klár, smelltu
hér til að
sjá niðurröðunina
|
|
Þriðjudagur 11. júlí 2006
GRG |
|
Hvað getur þú skotið fast!
Við hjá
Nikulás höfum samið við lögregluna á staðnum um að Radarmæla
skot hjá krökkunum sem vilja. Það geta allir fengið að prófa
að láta mæla sig, og öfugt við það þegar menn eru mældir á
bílum er betra að vera með sem mestan hraða!!
Þetta verður í gangi eftir hádegi á laugardag! Ekki er hægt
að gefa upp nákvæmari tímasetningu þar sem við erum að fá
lögregluna til að aðstoða okkur og fer það allt eftir önnum
hjá henni hvenær hún kemst!
|
|
Föstudagur 7. júlí 2006
GRG |
|
Staðfestingargjöld
Við hvetjum
þau félög sem enn hafa ekki greitt sín staðfestingargjöld að
gera það nú þegar, vinna við niðurröðun leikja er kominn í
fullan gang og það eru félög sem bíða eftir því að komast á
mótið og við áskilum okkur allan rétt til að taka þau fram
fyrir félög sem ekki greiða sín gjöld. Við vitum að þið
skiljið að það er mjög erfitt þegar verið er að breyta
skráningu fram á síðustu stundu, og þannig dregst að við
getum sent frá okkur dagskrá.
Og þá viljum
við minna þau félög sem vilja frátekið svæði fyrir tjöld og
vagna að senda okkur
póst.
|
|
Föstudagur 7. júlí 2006
GRG |
|
Opnunartími í Samkaup Úrval!
Samið hefur
verið við verslunina hér í bæ að breyta opnunartíma
sínum yfir Nikulásarhelgina!
Opnunartími er
sem hér segir:
Föstudag
14/7 kl
9-20
Laugardag
15/7 kl 9-19
Sunnudag
16/7 kl 11-17
Fullt
af
tilboðum gosi,nammi,snakki,kjöti
Einnig
40% afsláttur
af
ýmsum
fatnaði.
|
|
Fimmtudagur 6. júlí 2006
GRG |
|
Pedromyndir
Ljósmyndarar frá
Pedromyndum munu verða á Nikulásarmótinu og mynda allt
sem er í gangi, þeir munu síðan vera með sýningu á
myndum frá mótinu, þar sem fólk getur keypt flottar
myndir. Þá munu þessir frábæru ljósmyndarar frá
Pedromyndum sjá um að mynda öll liðin sem keppa á mótinu
og keppendur fá síðan afhenda mynd af sínu liði, sem
gjöf frá Nikulási!!!
|
|
Miðvikudagur 5. júlí 2006
GRG |
|
Íbúðir til leigu!
Tvær 100 fm íbúðir eru til
leigu fyrir fjölskyldur og einstaklinga á besta stað í
bænum (beint fyrir fram Tjarnarborg)
Íbúðirnar eru fullbúnar og leigjast þannig
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Þorstein í síma
892-5451
Smelltu
hér til að skoða myndir af húsinu!
|
|
Miðvikudagur 5. júlí 2006
GRG |
|
Eitt og annað!
Félög eru minnt á að koma með félagsfánana sína svo þau
geti notað hann við skrúðgönguna
Gestur á
Nikulásarmótinu: Auðunn Helgason landsliðsmaður
og leikmaður íslandsmeistara FH, verður gestur á
Nikulásarmótinu og mun meðal annars afhenda keppendum
verðlaun. Auðunn var á árum áður leikmaður Leifturs og
eftir tveggja ára dvöl hjá Leiftri fór hann beint í
atvinnumennsku og hefur síðan verið í íslenska
landsliðinu.
|
|
Miðvikudagur 5. júlí 2006
GRG |
|
Matarkort
Eins og undanfarin ár verður hægt að kaupa matarmiða og er
verðið eftirfarandi:
Matarkort:
Morgunmatur 500 kr.
Hádegismatur 700 kr.
Kvöldmatur 1200kr.
Ef keypt er allar máltíðir í stöku kostar það 3600
Ef keypt er kort fyrir alla helgina í einum pakka kostar
það einungis. 3000 kr.-
|
|
Mánudagur 3. júlí 2006
GRG |
|
Staðfestingargjöld!!!
Þau lið sem eru ekki búin að greiða
staðfestingargjöldin eru hvött tilað gera það nú þegar!
Það er búið að loka skráningu á mótið og nokkur lið á
biðlista og áskilur Nikulás/Leiftur sig til að ógilda
skráningu ef staðfestingargjöld eru ekki greidd nú
þegar!
Reikningsnúmmerið til að leggja staðfestingargjaldið inn á
er 1127-26-820 kt. 640300-4420 og vinsamlegast sendið
kvittun með skýringu á greiðslu á
nkl@simnet.is
|
|
Þriðjudagur 3. júlí 2006
GRG |
|
Gisting
Gistimöguleikum fyrir aðra en keppendur fer hratt minnkandi,
hægt er að athuga málið á Hótel Brimnesi (466-2400)
Einnig vitum við um eina manneskju sem er tilbúin að leigja
húsið sit með öllu, áhugasömum bent á að hafa samband við
Þórgunni í síma 864-5997
Það er að segja þeir sem treysta sér ekki til að vera í
Tjaldi!
|
|
Þriðjudagur 30. júní 2006
GRG |
|
Veðurspáin Nikulásarhelgina!
Veðurklúbburinn Á Dalvík (Dalbær) spáir mildu og góðu veðri
helgina 14.-16. júlí nk. og gerir ráð fyrir að það verði sv.
áttir þessa daga, sem gæti skilað sér í ágætis hita!!!
Það væri þá aldrei að við fengjum ásættanlegt veður í ár
eftir sudda kulda og rigningu síðustu ár... við teljum
allavegna tímabært að veðrið standi með okkur í ár, því það
hefur ekki gert það sl. ár!!!
7-9-13...
|
|
Þriðjudagur 27. júní 2006
GRG |
|
Met aðsókn!
Nú þegar hafa um 680 keppendur skráð sig víðs vegar af
landinu og er það algjört met frá því sem verið hefur
(reyndar hefur það stækkað jafnt og þétt undanfarin ár).
Hægt er að sjá hvaðan þeir eru að koma með því að smella á
hnappinn „skráning“
fyir ofar.
Nú er undirbúningur í fullum gangi og ef það eru einhverjar
fyrirspurnir er bent á netfangið
helgai2@simnet.is
|
|
Þriðjudagur 13. júní 2006
JVB |
|
4. flokkur ekki á Nikulásarmóti
Vegna mikillar þáttöku í 5. 6. og 7. flokki erum við því
miður ekki að sjá okkur fært að bæta við 4. flokki á mótið í
sumar eins og til stóð.
En við hvetjum öll félög sem ætla að vera með á
Nikulásarmótinu að skrá sig sem fyrst því að hugsanlega
þurfum við að loka fyrir skráninguna þar með útlit er fyrir
að mótið verði yfirfullt. |
|
Þriðjudagur 13. júní 2006
JVB |
|
Tjaldstæðin
Þau féög sem vilja láta taka frá fyrir sig svæði á
tjaldstæðunum þurfa að senda okkur upplýsingar um áætlaðan
fjölda tjalda og vagna.
Netfangið er
helgai2@simnet.is
Ekki er verra að láta vita í tíma!!!
|
|
fimmtudagur 27. apríl
2006
GRG |
|
Skráningar að hrannast inn!
Nú eru skráningar í fullum gangi! við lentum í smá vandræðum
með skráningarformið en það ætti að vera komið í lag núna,
ef þið lendið í einhverjum vandræðum getið þið sent okkur
póst á leiftur@simnet.is,
endilega látið okkur vita ef einhverjar spurningar eru og
við svörum þeim með ánægju! |
|
Föstudagur 10. febrúar
2006
JVB |
|
Nikulás styrkir Skíðafélagið
Við Nikulásarmenn styrktum
Skíðafélagið með pening sem ætlaður er til áburðakaupa.
Og á að kaupa áburð bæði fyrir alpagreinarnar og gönguna og
vonum við að þetta nýtist þeim sem best. |
|
Fimmtudagur 9. febrúar
2006
JVB |
|
Myndir
Hér eru myndir af hópnum sem
skipar Nikulásarklúbbinn |
|
Fimmtudagur 9. febrúar
2006
JVB |
|
Auglýsum eftir myndum
Við auglýsum eftir stafrænum myndum af liðnum Nikulásarmótum
og einnig myndum af þeim atburðum sem krakkarnir okkar hafa
verið að taka þátt í nýlega. Og ef þið sendið myndir þá
vinsamlegast tilgreinið hvaða atburður er, hvar og hvenær
Myndirnar er hægt að senda á
Jón Valgeir
|
|
Fimmtudagur 9. febrúar
2006
JVB |
|
Æfingaferð 7. flokks í Boganum á
Akureyri
Ein og greint er frá hérna fyrir neðan þá var 7. flokkur
Leifturs á leiðinni inn í Boga og var sú ferð farin í gær og
stóðu Leiftursmenn sig mjög vel. Nikulásarmenn voru með í
för og hérna eru myndir frá
ferðinni.
|
|
Þriðjudagur 7. febrúar
2006
JVB |
|
Myndir af knattspyrnumótinu 7. feb.
Nikulásarmenn voru auðvitað á æfingamótinu sem haldið var í
íþróttahúsinu í Ólafsfirði þriðjudaginn 7. febrúar og
hér eru nokkrar myndir af
mótinu og vonandi koma fleiri fljótlega.
|
|
Laugardagur 4. febrúar
2006
JVB |
|
Skíðafólkið okkar æfir á Siglufirði
Þessa helgina er alpagreinafólkið okkar í 5. bekk og eldri
statt á Siglufirði í æfingaferð.
|
|
Laugardagur 4. febrúar
2006
JVB |
|
7. Flokkur spilar æfingaleik í Boganum
Næstkomandi miðvikudag stendur til að 7. flokkur í Leifturs
fari til Akureyrar að spila æfingaleik í Boganum við
Þórsarana. Leikurinn verður spilaður í æfingatíma hjá Þór
sem er frá kl: 15:00 - 16:00
|
|
Laugardagur 4. febrúar
2006
JVB |
|
6. Flokkur spilar á æfingamóti
Næstkomandi þriðjudag spilar 6. flokkur Leifturs á
æfingamóti sem haldið verður í Íþróttahúsi Ólafsfjarðar og á
það að hefjast kl: 15:00
|
|
Miðvikudagur 1. febrúar
2006
JVB |
|
Íþróttamaður Ólafsfjarðar 2005
Elsa Guðrún Jónsdóttir
Á
heimasíðu Ólafsfjarðar segir frá að það var skíðakonan
Elsa Guðrún Jónsdóttir sem var valin Íþróttamaður
Ólafsfjarðar 2005. Verðlaunaafhendingin fór fram á
þorrablóti kvenfélagsins nú um helgina. Elsa Guðrún gat því
miður ekki verið með okkur um helgina, en hún er þessa
dagana að keppa á heimsmeistaramóti unglinga í Slóveníu.
Tilnefningar 2005
Elsa Guðrún Jónsdóttir:
Skíðafélag Ólafsfjarðar
Sigurbjörn Þorgeirsson:
Golfklúbbur Ólafsfjarðar
Helgi Þórðarson: Hestamannafélagið Gnýfari
Anton Konráðsson:
Skotfélag Ólafsfjarðar
Hjalti Már Hauksson:
Íþróttafélagið Leiftur
Nikulásarmenn óska þessum aðilum inilega til hamingju
með árangurinn.
Hér er
heimasíðan sem segir frá úrslitum á heimsmeistaramóti
unglinga í Slóveníu
|
|
Miðvikudagur 1. febrúar
2006
JVB |
|
Sparkvöllur í Ólafsfjörð
Á
heimasíðu Ólafsfjarðar segir að á
fundi bæjarstjórnar
Ólafsfjarðar sem haldinn var í gær (mánudag) var samþykkt
tillaga bæjarráðs frá 16. janúar s.l. þess efnis að leita
eftir samstarfi við KSÍ um gerð sparkvallar við grunnskólann
hér í Ólafsfirði. Jafnframt var samþykkt að leita eftir
samstarfi við grunskólann og íþróttahreyfinguna um skipan
starfshóps um þetta mikilvæga verkefni og verði honum
jafnframt gert að horfa til framtíðarskipulags og
uppbyggingar á öllu svæðinu kringum skólana.
|
|
Miðvikudagur 1. febrúar
2006
JVB |
|
Úrslitin á Klóamótinu
Hægt er að skoða úrslitin og tímana á Klóamótinu á
heimasíðu
Skíðafélags
Akureyrar.
|
|
Þriðjudagur 31. janúar
2006
JVB |
|
Elsa Guðrún keppir á HM unglinga
HM unglinga í norrænum greinum var sett í gærkveldi. Elsa
Guðrún Jónsdóttir skíðakona frá Ólafsfirði er eini
þátttakandi Íslands á þessu móti sem fram fer í Kranj í
Slóveníu. Elsa byrjar keppni í dag, þriðjudag, og þá keppir
hún í sprettgöngu. Hún keppir síðan á morgun í 5 km göngu
með hefðbundinni aðferð og síðan aftur á föstudag í
tvíkeppni þar sem fyrst eru gengnir 5 km með hefðbundinni
aðferð og síðan 5 km með frjálsri aðferð strax á eftir. Með
Elsu í Slóveníu eru Helgi Jóhannesson fararstjóri og Jón
Konráðsson faðir Elsu. Á
Heimasíðu mótsins er hægt er að skoða úrslit og fá
aðrar upplýsingar
|
|
Mánudagur 30. janúar
2006
JVB |
|
Æfingarmót 7. flokks á Dalvík í knattspyrnu
Við tókum nokkrar myndir á æfingamótinu á Dalvík sem haldið
var á sunnudaginn og er hægt að sjá þær á
myndasíðunni
|
|
Mánudagur 30. janúar
2006
JVB |
|
Ólafsfirðingarnir á Klóamótinu
Ólafsfirsku börnin sem fóru á Klóamótið á Akureyri í gær
laugardag gerðu það gott og hrifsuðu til sín þó nokkuð af
verðlaununum.
Í 9 ára flokki drengja náði Jón Fannar Björnsson 2. sæti
og hjá stúlkunum var Alexía María Gestsdóttir í 1. sæti -
Kara Gautadóttir í 2. sæti og Ólöf Þóra Tómasdóttir í 3.
sæti.
Í 10 ára flokki stúlkna varð Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir
í 1. sæti og Arndís Lilja Jónsdóttir í 3. sæti
Í 12 ára keppti dalvíkingurinn Hjörleifur fyrir
Ólafsfjörð og hreppti þar 1. sæti.
Nikulásarmaður var staddur á mótinu og tók nokkrar myndir
og er hægt að skoða þær hér.
Úrslitin á mótinu er hægt að skoða á heimasíðu
Skíðafélags
Akureyrar.
|
|
Fimmtudagur 26. janúar
2006
JVB |
|
Nýjar myndir
Við vorum að setja inn nýjar myndir
frá því á Nikulásarmótinu 2005 Ég bætti einnig við
myndum í 2004
Ef þið lumið á myndum frá liðnum mótum þá endilega sendið á
Jón
Valgeir
|
|
Fimmtudagur 26. janúar
2006
JVB |
|
Ólafsfirðingar á skíðamót á
Akureyri
Á heimasíðu
Skíðafélags Ólafsfjarðar segir frá Klóamótinu sem verður
haldið á Akureyri laugardaginn 28. janúar. Þetta er
mót fyrir börn á aldrinum 9 - 12 ára og eru ólafsfirðingar á
leiðinni á mótið, en keppt verður í stórsvigi og er mæting
kl 10:00.
Við viljum endilega hvetja foreldra til að vera duglegir að
mæta, þetta eru skemmtilegar ferðir.
|
|
Fimmtudagur 26. janúar 2006
JVB |
|
Baldur Ævar á stórmót ÍR í
frjálsum íþróttum
Ólafsfirðingurinn Baldur Ævar Baldursson var beðinn um að
taka þátt í alþjóðlegu vígslumóti sem haldið er í tilefni af
opnun nýrrar frjálsíþróttahallar í Reykjavík laugardaginn
28. janúar. En sýnt verður beint frá þessu móti í
Ríkissjónvarpinu og hefst útsendingin kl 16:50. En á
heimasíðu
Íþróttafélags fatlaðra en greint nánar frá þessu.
|
|
Þriðjudagur 24.. janúar
2006
JVB |
|
7. flokkur Leifturs á
æfingamót á Dalvík
7. flokkur Leifturs er að fara á æfingamót í knattspyrnu á
Dalvík sunnudaginn 29. janúar. Á mótinu munu spila tvö lið
frá Leiftri og fjögur lið frá Dalvík. Áætlað er að keppni
hefjist kl: 12:00
6. flokkur mun síðan að spila á
æfingamóti í íþróttahúsinu í Ólafsfirði þriðjudaginn 7.
febrúar kl: 15:00
|
|
Fimmtudagur 19. janúar
2006 JVB/GRG |
|
Kristján Uni á
vetrarólympíuleikana
Það er sagt frá því í
Morgunblaðinu 17. janúar að fimm Íslenskir Skíðamenn hafi
náð lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Tórínó á Ítalíu 10.-26.
febrúar og er Ólafsfirðingurinn Kristján Uni Óskarsson einn
af þeim sem halda út á leikana
|
|
Föstudagur 13. janúar
2006
JVB |
|
Elsa Guðrún Jónsdóttir
skíðakona ársins 2005
Skíðafélag Ólafsfjarðar valdi Elsu Guðrúnu skíðakonu
ársins 2005 og óska Nikulásarfélagar henni innilega til
hamingju með árangurinn.
|
|
Fimtudagur 12. janúar
2006
JVB |
|
Jólaserían á húsi eldri
borgara tekin niður
Nikulásarfélagar héldu sínu
striki með jólaseríuna á húsi eldri borgara og tóku hana og
jólatréið niður í gær og gengu frá.
Við tókum nokkrar
myndir í leiðinni
|
|
Miðvikudagur 11. janúar 2006
GRG |
|
Nýtt útlit
Heimasíða okkar hefur nú fengið nýtt útlit og fréttir og
fleira munu koma inn mun meira en hefur verið á
ársgrundvelli. Vorum sem sagt að færa hana yfir núna í dag
og á enn eftir að klára allar færslur s.s. eldri myndir
og.fl.
Skráningarformið fyrir mótið 2006 er aftur á móti klárt og
geta félög sótt um rafrænt, smellið á skráningu hér fyrir
ofan til að gera það
|
|
Miðvikudagur 11. janúar
2006
JVB |
|
Nikulás lánar Skíðafélagi
Ólafsfjarðar minibussinn
Skíðafélag Ólafsfjarðar hefur hafið æfingar á Dalvík
fyrir 4. bekk og eldri og höfum við í Nikulás lánað þeim
minibussinn okkar til að ferja krakkana
á milli
Það má búast við myndum á næstu dögum
|
|
Laugardagur 31. desember 2005 |
|
Drög að dagskrá
Nú er búið að setja inn drög að
dagskrá fyrir nk. sumar, smellið á dagskrá hér fyrir ofan
til að skoða það
Einnig eru hægt að skoða aðrar
hagnýtar upplýsingar varðandi mótið með því að smella
hér
|
|
Laugardagur 31. desember 2005 |
|
Gleðilegt ár
Nikulás óskar
Ólafsfirðingum sem og landsmönnum öllum Gleðilegra jóla og
farsældar og nýju ári |
|
Miðvikudagur 14. desember 2005 |
Nikulásarmenn aðstoða félag eldriborgara!Þó að
Nikulásarmenn séu þekktastir fyrir stuðning sinn við yngstu
kynslóðina er ekki þar með sagt að þeir stoppi þar.
Undanfarna daga hafa Nikulásarmenn verið að aðstoða félag
eldriborgara við breytingar á húsi þeirra. Einnig hafa þeir
séð um að koma upp jólaseríunni á húsinu.
Félag eldriborgara hafa ævinlega lánað Nikulásarmönnum hús
sitt undir gistingu þegar kemur að móti enda fannst Þeim
fátt sjáflsagðara en að leggja til hjálparhönd. Einnig
gáfu þeir félagi eldriborgara fallegt jólatré að gjöf.
Við fórum og náðum nokkrum
myndum við framkvæmdirnar og afhendingu á jólatrénu! |
|
Föstudagur 9. desember 2005 |
Myndir frá PedromyndumVið vorum rétt í þessu að
skella inn myndum sem við fengum hjá Pedromyndum, um er að
ræða liðamyndirnar og svo almennar myndir. smelltu á Myndir
hér fyrir ofan til að skoða, svo verður farið að uppfæra
vefnn, skráningarform verður lagað fyrir árið 2006 o.sv.frv.
Skráningar liða koma hérna jafn óðum inn, fylgist með. Svo
er ekki útilokað að við förum á stjá og tökum myndir hér og
þar!!! |
|
Þriðjudagur 6. desember 2005 |